Skip to content
Hvað er í boði á Íslandi?
​
⁠
Einhverfusamtökin
Markmið samtakanna eru meðal annars að bæta þjónustu við einhverfa, standa vörð um lögbundin réttindi þeirra og stuðla að fræðslu um málefni einhverfs fólks. Hægt er að hafa samband í tölvupóstfanginu einhverfa@einhverfa.is til að fá upplýsingar um greiningaraðila. eru fréttir og ýmsar upplýsingar.
Hittingar
Skynsegin hittingar eru haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 16 á Yndisauka. Allt skynsegin fólk velkomið.
Einhugar: einhverfuhittingar fyrir háskólanema eru haldnir á veturna þriðja þriðjudag í mánuði kl. 16 í Veröld, húsi Vigdísar, nálægt Kaffi Gauk.
Borðspilahittingar eru haldnir á Borgarbókasafni Kringlunni aðra hverja viku. Hægt er að fylgjast með hvenær þeir eru á Skynsegin FB hópnum.
Handavinnuhittingar Einhverfusamtakanna eru haldnir annan laugardag hvers mánaðar kl. 14:30-16:30 og eru fyrir alla 18 ára og eldri sem hafa áhuga á að mæta með handavinnuna sína. Viðburðirnir eru haldnir á Háaleitisbraut 13, matsalnum á 1. hæð.
Hópar á Facebook
⁠ er fyrir einhverft fólk og aðstandendur þeirra. Hópnum er haldið úti af Einhverfusamtökunum.
⁠ er einungis fyrir fólk sem er skynsegin. Stjórnendur hópsins eru öll skynsegin.
⁠ er haldið úti af mörgum af sömu stjórnendum og Skynsegin hópurinn en er opinn öllum óháð taugatýpu.

Þjónusta
…

Hafa má samband í tölvupóstfanginu einhverfuhandbokin@gmail.com ef viðburður sem þú heldur eða þjónusta sem þú býður upp á vantar á listann.

Want to print your doc?
This is not the way.
Try clicking the ··· in the right corner or using a keyboard shortcut (
CtrlP
) instead.